Asskoti er
langt síðan ég bloggaði...og vááááá hvað tíminn er fljótur að
líða!!!! Ég hreinlega næ þessu ekki...líður tíminn miki
hraðar á Ítalíu eða????? Þarf að tékka á því.....
En eins og
flestir vita þá er ég ENN í prófum takk fyrir og góðan daginn!!!!
Þetta er ekki hægt það er meira en 30 stiga hiti úti og ég sit inni
fyrir framan tölvuna að photoshoppa í 5 tíma á dag....drasl!!!!!!
En þar sem ég kláraði erfiðasta verkefnið mitt í dag leyfði ég mér
að sitja út á svölum með Írisi minni að sóla mig smá ...ættuð að
sjá okkur...ansi skondið par....
ÉG MISSTI AF
ÍTALÍU LEIKNUM Í DAG!!!!!!!!!! Frekar pisst!! Ætlaði að leggja mig
í smá stund...sem urðu að 4 tíma lúr!!! En strákarnir mínir eru að
gera góða hluti hérna!!! Enda erum við með laaang myndarlegasta
liðið
Forza Italia babý...
ég vil sjá þá á
móti Brasilíu í úrslitaleiknum!!!!! Það verða þá einhver riflrildi
í Jórdaníu...ahemm.....þar sem ég held með Ítalíu og ætla mér að
standa við það!!!!!!!

mátti til með að setja inn
tvær af flottasta leikmanninum...fyriliðanum sjálfur... Fabio
Cannavaro...Hann er eini maðurinn sem kemst upp með að heita
Fabio!!!!!

Alessandro
Nesta
Gianluca Zambrotta

Alessandro del
Piero
.....áfram stákar mínir
ég veit þig getið þetta

Moving on....
......annað en að vera
liggjandi sveitt yfir heimavinnunni þá skellti ég mér út á
miðvikudeginum með íslenku/ítölsku blondínunum í partý á Cavalli
Café.....
allt í góðu mér var sagt að
þetta væri Paris Hilton partý og ég gerði bara ráð fyrir að það
væri þemað og kynning á ilmvatninu hennar eða eitthvað álíka
.....nei nei haldiði að mín hafi verið inná VIP dansandi við lagið
sitt....UPP Á BORÐI hvað annað
Frekar spes að sjá hana...alveg
klippt út úr tímariti ekki nóg með það en hann Roberto Cavalli
sjálfur mættur á svæðið!!! Segiði svo að ég kunni ekki að taka
almennilegt djamm

Myndir frá
kvöldinu.....


ps ég tók þær ekki...ef þið
haldið það
Þetta var snilldar
kvöld....tónlistin alveg mega, það voru reyndar BARA fyrirsætur
þarna og gátum voða lítið annað en hlegið að þessum aumingja
stelpum.....kunna EKKERT að hreyfa sig...ahahahahaha.. einn kall
kom alveg á eipinu og bað dyraverðina vinsamlegast að hætta að
hleypa stelpum inn og hleypa inn sætu
hommunum.....ahahahahahaha
Skreið heim um
fimmleytið en þurfti svo að hunskast á fætur um 9 til að halda
áfram að læra og það gekk til að verða tvö um nóttina!!! Það sem
maður getur pínt sig fyrir eitt djamm.......
Ótrúlegt en satt
þá er ég að fara til Jórdaníu eftir 8 daga...ég fer til London á
fimmtudeginum hitti Briony og tek eitt gott djamm með henni og svo
í flugvél daginn eftir og hitti brjálaða frændfólk mitt hinumegin á
hnettinum!!!!
Kem svo heim
eftir mánuð!!!!!!!!!!! Hljómar langt þangað til en mér finnst eins
og páskarnir höfðu verið í seinustu viku!!!!! Og jólin í
þarseinustu....hahaha Vá núna er ég byrjuð að bulla!!!
Á eftir að skila tveimur
verkefnum sem ég ætla mér að klára um helgina því ég þarf að fara
að shoppa fyrir hitann í Jordan babý
bikini og sumarkjóla....svo
vantar mér skó.... 

